HATA aðfaranætur mánudags!!!

Það virðist vera sama hvað ég geri ég geti ekki sofnað á skikkanlegum tíma á sunnudagskvöldum… ætlaði í ræktina í morgun en eftir 4 1/2 tíma svefn hélt ég nú ekki!!! Bylti mér í 2klst í rúminu áður en ég loks sofnaði…urr!!! Og ég sem hafði verið svo þreytt um kl 18 og barðist við að halda mér vakandi því ég ætlaði ekki að vera andvaka!!! Spurning hvort ég hafi verið svona spennt að byrja á nýju prógrammi..veit ekki..ohhh!!! Var 0rðin nettpirruð þegar ég hafði legið í rúminu í klst og ekki náð einu sinni að dotta..

Jæja, það verður annar dagur eftir þennan dag. Ég er nefnilega að fara að vinna og verð til kl 18 og þá tekur kvöldmatur við og svo heimalærdómurinn og svo svefninn! :) skal geta sofnað á skikkanlegum tíma í kvöld..

Annars vaknaði ég svo í morgun (hafði auðvitað vaknað við vekjarakl kl 6:30) við heimasímann, skreið mygluð á fætur, veltandi fyrir mér hver væri að hringja á þessum tíma.. þá var þetta djöfuls píp og verið að reyna að senda fax í nrið okkar! Komumst að því nokkrum dögum eftir að fá þetta nr fyrir nokkrum árum að þetta hefði verð nr hjá einhverju fyrirtæki, man ekki hvða það hét. Og marga daga um kl 6 eða 7 um morguninn var alltaf hringt, trekk í trekk þá var verið að reyna að senda fax, og einn daginn hringt frá Danmörku og konan ætlaði bara ekki að fatta að þetta væri heimasími en ekki fyrirtækisnr lengur!!! og svo byrjaði þetta aftur í morgun.. tók símann úr samb…grrr!!

Eigiði góðan mánudag!

Published in: on February 13, 2006 at 9:32 am  Comments (2)  

The URI to TrackBack this entry is: http://lettfeti.wordpress.com/2006/02/13/hata-a%c3%b0faran%c3%a6tur-manudags/trackback/

RSS feed for comments on this post.

2 CommentsLeave a comment

  1. Velkomin í hópinn og takk fyrir linkinn ;)

  2. Ég kannast líka við þetta, að geta ekki komið sér á strik aftur í svefninum eftir helgarnar… sem betur fer byrjar skólinn hjá mér ekki fyrr en kl 11 á mánudögum svo ég hef smávegis aðlögunartíma…


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.