Já,vaknaði með kúlu bak við eyrað í gær, ekki stór en aum og hörð.. Ca á stærð við þumalfingurnögl. Allavega, pældi ekki meira í henni fyrr en í dag, enn þarna, jafn hörð og áður. Fór að pæla í þessu, þetta væri ekki bóla (og þá væri þetta sú allra, allra, allra stæðsta sem ég hefði fengið!) svo ég skellti mér til læknis, hafði svosem annað að fara út af, ekkert sem lá á en nýtti ferðina.
Kom í ljós að þetta er bólginn eytill, sagði að ég væri líklega með sár eða bólu í hársverðinum og því hefði eytilinn bólgnað, taka móti eitrinu… skemmtilegt.. hmm.. allavega svo spurði ég hvort að og hvenær það kæmi fram að pillan hefði áhrif á húðina, því ég hef ekki verið svona slæm í húðinni held ég bara ever. Hef auðvitað fengið bólu og bólu, verið misjafnlega slæm en ekki eins og núna, bara andlitið (sem betur fer ekki stórar rauðar hlussur, meira bara litlar bólur, finnst aðallega þegar maður stríkur yfir.. (hormónabólur?)) og þá sagði hann.. ja þú ert nú ekki með bólur.. þá meinti hann þar sem þær væru ekki rauðar, stórar og að springa úr greftri þá væri þetta ekki neitt!!! urr varð reið.. en hann skrifaði upp á nýja pillu sem er með minna af hormónum.. (kallinn spurði hvort hún væri þá lélegri.. hehe)
Svo þriðja vandamálið er svefn. Ég á erfitt með að sofna þó ég sé oft dauðþreytt þegar ég kem heim úr vinnunni, á erfitt með að sofna eða þá að ég vakna oft á nóttunni og núna er ég farina ð vakna og er að drepast í öxlum, herðum, hálsi og haus.. frekar fúlt og hann hafði nú þá skoðun að þetta væri stress eða áhyggjur..eitthvað í undirmeðvitundinni því ekki veit ég hvað þetta er sem veldur mér stressi.. hef engar áhyggjur.. ekki svo ég viti til.. En svo sagði hann að þetta væru líka byrjunareinkenni vefjagigtar..en því trúi ég tæplega..
Svo ég spyr, gæti verið að það sem ég hef áhyggjur af sé átakið mitt? ég hugsi of mikið um það, líði svo illa yfir mínu framtaksleysi, leti og litla sjálfsaga og heimsku að ég sé að sofa illa yfir því? Bara smá spekúlering.
En já, þá er þessi, mjög svo niðurdregni pistill á enda.. farin að læra undir próf..ekki byrjuð…djöfull.. heyrumst!
Gætir mögulega verið með áhyggjur af átakinu, maður fær þetta náttúrulega alveg á heilann… allavega gangi þér rosalega vel og vonandi fer þessi bólgni eitill að minnka….
)))
Baráttukveðja Íris