Þá er öðru prófinu lokið og fór hann yfir prófið meðan við gerðum krossgátu úr næsta kafla.
Kom betur út en hitt prófið, meðaleinkunnin var 7 eða 7,eitthvað… og ég fékk 9,5. Mér fannst þetta erfiðara próf og klúðraði þessum eina krossi þó ég hafi 2svar ætlað að krossa í hann.. semsagt fór yfir prófið og ætlaði að krossa í reitinn (sem var réttur), en akvað að bíða, mundi lítið eftir þessu og ætlaði að vera alveg save..ok svo fer ég yfir prófið og kem aftur að þessari spurningu og ætla aftur að krossa í þennan reit, en fer að hugsa meira, pæla, efast..æjj bara prump! og fannst þar sem að prófið var erfitt þá gæti þetta verið flóknara.. og ég krossaði við vitlaust.. *andvarp*
Var næst hæðst, ekki slæmt það
og er komin með góða meðaleinkunn og verð bara að standa mig vel í 3 hlutaprófinu og svo auðvitað lokaprófinu líka
Annars er kannski ísskápurinn að gefa sig ;( er alltaf pollur neðst, og alltaf að þurrka hann.. ja nokkrum sinnum og samt sé ég ekki hvaðan í andsk þetta vatn gæti komið! enginn frystir… ohh! gamall ískápur, veit reyndar ekki hversu gamall..en jæja.. ætli maður þurfi ekki að splæsa í nýjan ;(