Í gær kom hræðilegt fyrir í ættinni. Frænka mín (systir ömmu, en hún er bara um 6-8 árum eldri en pabbi) hefur verið með manni í nokkur ár. Hann átti börn úr fyrra hjónabandi og sömuleiðis hún. sum voru flogin úr hreiðrinu og önnur ekki.
En í gær kom hræðilegt fyrir. Sonur hans var í jeppanum sem lennti í sprungunni á Hofsjökli í gær og lést.
Það er alltaf hræðilegt að missa börnin sín. Sjálf þekkti ég þennan dreng ekki, enda hefur hans fjölskylda ekki verið það lengi tengd minni til að við höfum öll hist. En maður finnur svo til með fjölskyldunni hans og vinum.
Samhryggist ykkur alveg hreint óskaplega mikið ;(