Furðulegt að þrátt fyirr mikinn svefn í nótt, þá var ég geyspandi af og til í dag. En samt hress. Og svo aftur í kvöld þá voru augnlokin farin að síga um kl 21. Kannski vegna þess að ég ákvað að taka mér pásu frá ísfólkinu, les þær einum of hratt… finnst þær svo skemmtilegar og er gjörsamlega húkt! einnig ekki kveikt á sjónvarpinu.. hefur örugglega eitthvað að segja..enda sofna ég aldrei fyrir framan sjónvarpið.. nema kannski 1-2svar á ári!
Annars er ég komin í bólið með tölvuna, er að spjalla við múttu á msn, ætla að kíkja bloggrúnt og fara svo að sofa. OGGG vakna snemma til að fara í ræktina.
Fer líklega á morgun og kíki í kringluna, laugarveginn eða smáralindina og finna eitthvað smart við svörtu fínu buxurnar fyrir árshátíðina. EInhverjar tillögur um góða búð?
Annars vil ég koma með beiðni til ykkar.. endilega commentið hjá mér.. sé traffíkina eftir að Gellan sagði mér hvar ég get fylgst með því en allt of fáir, í raun enginn commentar!
Enn, ég er eitthvað betri í skapi nú en áður.. veit ekki hvers vegna.. vonandi helst það
Good luck í ykkar málum!