Saumó

ómæjómæjómæj :) já það var sko borðað.. en samt… fékk mér smá af öllu.. ekkert misst sig neitt :)

Annars var ég lengur en ég ætlaði, bara get ekki staðið upp og bara farið snemma! meina hitti þær kl 21 og hef ekki séð þær í lengri tíma, alltaf 2 vikur á milli.. og margt að spjalla um, hlegið saman ofl.. gat bara ekki rifið mig upp af rassinum og farið snemma! Svo ég er að blogga núna, ná mér niður og reyna að fara að sofa, sé svo til hvernig ég verð í fyrramálið.. langar í ræktina! GET ÆTLA SKAL!!!! þó mér finnist flottara að segja, SKAL GET OG ÆTLA!!!! þá kemur út sgæ í stað gæs :) hehe

Árshátíð eftir tvo daga!!! ætla að reyna að vakna um tíu og taka góða brennslu, bruna svo í fataleiðangur..finna eitthvað við flottu buxurnar, ogggggg nærföt! gatslitin, úrsérgengin og ljót! þau sem ég á..

Góða nótt!

Published in: Uncategorized on March 3, 2006 at 12:22 am  Comments (3)  

Slagsmálakisi!

Sé að það er meiri umferð í dag en síðustu daga :) greinilega borgar sig að heimsækja oooggg kvitta :) og svo skrifa skemmtilegri blogg..

En já, það merkilega gerðist í dag, ég mætti í ræktina.. eftir ekki nógu góða nótt samt..

Fór að sofa rétt fyrir ellefu, vakna rétt fyrir tvö þegar kallinn skríður upp í.. þá hafði hann verið að leita að kisa, kom ekki heim eins og hann er vanur (kemur heim ca hálf tólf tólf í síðsta lagi alltaf!) og fór út í kuldann og gekk um hverfið heillengi. Svo það var skilinn eftir gluggi opinn og ég alltaf að vakna við ímynduð bjölluhljóð ofl.

En ég vaknaði um 6!! og hringdi í mamasita og var mætt um hálf sjö!! jám :) svo stolt.. nema hvað svo ath ég og sé hana hvergi, fer að hita upp.. búin að hita upp í svona 13 mín þá læðist sú hugsun að mér að hún gæti hafa komð á meðan og sitji niðri, klára upp í 15 mín í upphitun og fer að stiganum og jújú hún situr niðri. Hafði samt komið á undan mer og verið að fylgjast með me´r því hún hafði gleymt skónum og lyklunum og vildi ekki fara heim að vekja alla.. fór svo að sækja skóna og ég hélt áfram á brettinu. Svo voru liðnar 21 mín og þá nennti ég ekki meir, ætlaði að lyfta í dag. Þá er hún komin.. gleymdi aftur skónum! svo hafði hún hitað upp úti í staðinn.

Við lyftum smá, vorum ekki lengur í stuði, en tók alla vöðvahópana í efri líkama svo þetta var bara gott sem svona fyrsti tími :)

 Hugsa að ég fari aftur á morgun :)

Nú er markmiðið 3-4x í viku!!! :) vona að það gangi

Published in: on March 1, 2006 at 5:48 pm  Comments (1)  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.