Sé að það er meiri umferð í dag en síðustu daga
greinilega borgar sig að heimsækja oooggg kvitta
og svo skrifa skemmtilegri blogg..
En já, það merkilega gerðist í dag, ég mætti í ræktina.. eftir ekki nógu góða nótt samt..
Fór að sofa rétt fyrir ellefu, vakna rétt fyrir tvö þegar kallinn skríður upp í.. þá hafði hann verið að leita að kisa, kom ekki heim eins og hann er vanur (kemur heim ca hálf tólf tólf í síðsta lagi alltaf!) og fór út í kuldann og gekk um hverfið heillengi. Svo það var skilinn eftir gluggi opinn og ég alltaf að vakna við ímynduð bjölluhljóð ofl.
En ég vaknaði um 6!! og hringdi í mamasita og var mætt um hálf sjö!! jám
svo stolt.. nema hvað svo ath ég og sé hana hvergi, fer að hita upp.. búin að hita upp í svona 13 mín þá læðist sú hugsun að mér að hún gæti hafa komð á meðan og sitji niðri, klára upp í 15 mín í upphitun og fer að stiganum og jújú hún situr niðri. Hafði samt komið á undan mer og verið að fylgjast með me´r því hún hafði gleymt skónum og lyklunum og vildi ekki fara heim að vekja alla.. fór svo að sækja skóna og ég hélt áfram á brettinu. Svo voru liðnar 21 mín og þá nennti ég ekki meir, ætlaði að lyfta í dag. Þá er hún komin.. gleymdi aftur skónum! svo hafði hún hitað upp úti í staðinn.
Við lyftum smá, vorum ekki lengur í stuði, en tók alla vöðvahópana í efri líkama svo þetta var bara gott sem svona fyrsti tími
Hugsa að ég fari aftur á morgun
Nú er markmiðið 3-4x í viku!!!
vona að það gangi
hehe já ég er nú meiri bjáninn!!! Greinilegt að heilinn nennir ekki á fætur kl 6 þó ég hafi neitt líkamann til þess!!