Saumó

ómæjómæjómæj :) já það var sko borðað.. en samt… fékk mér smá af öllu.. ekkert misst sig neitt :)

Annars var ég lengur en ég ætlaði, bara get ekki staðið upp og bara farið snemma! meina hitti þær kl 21 og hef ekki séð þær í lengri tíma, alltaf 2 vikur á milli.. og margt að spjalla um, hlegið saman ofl.. gat bara ekki rifið mig upp af rassinum og farið snemma! Svo ég er að blogga núna, ná mér niður og reyna að fara að sofa, sé svo til hvernig ég verð í fyrramálið.. langar í ræktina! GET ÆTLA SKAL!!!! þó mér finnist flottara að segja, SKAL GET OG ÆTLA!!!! þá kemur út sgæ í stað gæs :) hehe

Árshátíð eftir tvo daga!!! ætla að reyna að vakna um tíu og taka góða brennslu, bruna svo í fataleiðangur..finna eitthvað við flottu buxurnar, ogggggg nærföt! gatslitin, úrsérgengin og ljót! þau sem ég á..

Góða nótt!

Published in: Uncategorized on March 3, 2006 at 12:22 am  Comments (3)  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.